Kolbrá Kara Róbertsdóttir Chiglinsky er fædd þann 29. ágúst 2005 aðeins 4 dögum á eftir áætlun. Fæðingin var mjög mjög löng en allt hafðist þetta að lokum og falleg stúlka kom í heiminn kl 16:54. Hún reyndist vera 3845 gr eða 15,5 merkur og 53 cm. Við fæðingu var hún með talsvert dökkt hár eða mjög ólík móðurættinni að því leiti sem öll var sköllótt við fæðingu. Nú er hárið hins vegar alveg ljóst og nær niður á axlir. Það er hins vegar rosalega leiðinlegt að láta greiða á sér hárið. Augun voru dökk en eru nú fallega blá. Hún er algjört kraftaverk og líf okkar og yndi :)
Valur Ísak fæddist svo þann 10. janúar 2009 kl.13:20 eftir langtum styttri fæðingu en mun lengri meðgöngu eða 41 viku. Hann var 4250 gr eða 17 merkur og 53 cm. Hárið er ljóst og augum himinblá.
Foreldrar eru Jóhanna Ósk Tryggvadóttir f. 1981 og Róbert Páll Chiglinsky f. 1978. Mamman er hjúkka en pabbinn stefnir á að verða félagsráðgjafi.
Kolbrá
Nafn þetta er sett saman af forliðnum "Kol" sem merkir dökkt yfirbragð og nafnorðinu "brá" sem merkir yfirbragð, - augnhár.
Kara
Nafn þetta er komið af ítalska lýsingarorðinu "cara" sem merkir elskuð.
Fallbeyging
nf : Kolbrá Kara
þf : Kolbrá Köru
þgf: Kolbrá Köru
ef : Kolbrár Köru
Valur
Fugl.
Ísak
Úr hebresku og merkir hlátur. Ísak var sonur Abrahams og Söru (1. Mós. 17,17).
Fallbeyging:
nf : Valur Ísak
þf : Val Ísak
þgf: Val Ísak
ef : Vals Ísaks
Elísabet Ósk
Urður Ísafold
Árný Alda og Guðný Kristín
Salka Sóley og Erla Sigríður
Júlía
María Sigrún
Karína Ísis
Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.
Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér.
Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki.
Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta.
Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig.
Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus.
Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna.